fbpx
822 8356 bongo@bongo.is

Umbrot & hönnun

Ertu með hugmynd af bækling sem þig vantar að koma á blað? Hönnum fyrir prent/vef og lagfærum eldri prentverk.

SEO

Er búið að hanna vefsíðu sem er voða fín en enginn sér því enginn finnur hana? Viltu vera besti vinur Google?

Vefsíða

Vantar þig umgjörð utan um verkefni, fyrirtæki eða ertu með vef sem þyrfti uppfærslu eða endurskipulagningu?

Textun við myndbönd
Er myndbandið þitt ótextað, við textum myndbönd og kvikmyndir.
Vefhönnun
Hönnum og setjum upp vefi eða lögum þann gamla. Mjög góð WordPress þekking.
SEO - Leitarvélabestun
Sér enginn síðuna þína? Við gerum síðuna þína sýnilegri á Google.
h
Umbrot á prentverki
Víðtæk reynsla í umbroti á fagritum, skýrslum, bréfsefni og að laga eldri verk.
Vefumsjón
Ertu að leita að vefstjóra? Við uppfærum efni og sinnum öllum breytingum á vefnum þínum.
Ráðgjöf
Vantar þig hjálp við að finna farveg fyrir verkin þín. Getum leiðbeint þér frá A-Ö

Verkefnakistan

 

Ummæli

Ég hef margoft unnið með Kristínu Jónu að margskonar verkefnum í gegnum tíðina og vinnur hún ávallt af miklum metnaði og fagmennsku. Þar að auki er hún sérstaklega hugmyndarík. Kristín er aðgengileg og gott að vinna með. Ég mæli með Kristínu í hverskonar verk á hennar sérsviði.

Jóhanna Ella Jónsdóttir
Mannauðsstjóri og ráðgjafi

Við fengum Kristínu Jónu til að setja upp fyrir okkur ársskýrslu embættisins fyrir árið 2017. Hún tjáði okkur að umbrot skýrslu væri eitt af hennar skemmtilegustu verkefnum og það skein í gegnum hennar starf. Hún er öguð í vinnubrögðum, kom með margar góðar og fallegar lausnir á og var í mjög góðum samskiptum við okkur allan tímann.

Hún svaraði öllum ábendingum frá okkur fljótt og vel og það var skemmtilegt að eiga við hana samskipti. Hún er mikil fagmanneskja og við vorum virkilega ánægð með afraksturinn.

Eðvald Einar Stefánsson
Sérfræðingur
Umboðsmaður barna

 

Um árabil hefur Kristín Jóna séð um umbrot og birtingu fræðigreina í Netlu – veftímariti um uppeldi og menntun, fyrir Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún er þægileg í samskiptum og bregst fljótt og vel við öllum beiðnum og fyrirspurnum. Kristín Jóna hugsar fyrir því sem við áttum okkur ekki á og kemur með sniðugar uppástungur og góðar lausnir.

Katrín Johnson
Verkefnisstjóri
Menntavísindastofnun Háskóla Íslands

Kristín Jóna hefur unnið að grafískri hönnun margra verkefna sem ég hef tengst, bæði málörvunarefnis og ýmiss konar prófgagna. Hún er flottur fagmaður og kemur oft með mjög skemmtilegar lausnir varðandi hönnun og umbrot. Einnig er hún mjög þægileg í samskiptum og er aldrei neitt mál að breyta og laga útfærslur samkvæmt óskum viðskiptavina.

Bjartey Sigurðardóttir
Talmeinfræðingur og verkefnisstjóri

Við höfum notið krafta Kristínar Jónu síðan 2011. Höfum átt mjög þægilega og skilvísa  samvinnu. Hún skilur þarfir viðskipavinarinns og getur útskýrt hluti fyrir manni á mannamáli. Við mælum hiklaust með henni.

Kristín Ásgeirsdóttir
Eigandi – Yndisauki

Bongo Design (Kristín Jóna) setti upp heimasíðuna okkar. Snögg og fagleg vinnubrögð og svo kom hún með frábærar hugmyndir sem gera síðuna einfalda og mjög fallega. Hefur einnig komið að útliti á sálmaskrám útfararstofunnar.

Harpa Heimisdóttir – Eigandi
Útfaraþjónusta Hörpu