Barnasáttmálinn 30 ára
Hannaði þetta logo fyrir Umboðsmann barna, fyrir komandi afmælisár Barnasáttmálans.
Árið 2019 eru þrjátíu ár liðin frá því að Barnasáttmálinn var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember 1989.
Þessum merka áfanga verður fagnað með ýmsu móti hér á landi og víða um heim. Öll ríki heims, utan Bandaríkjanna, hafa staðfest sáttmálann og er Barnasáttmálinn á þrjátíu ára afmælinu því orðinn útbreiddasti mannréttindasáttmáli í heiminum.
Hannaði þetta logo fyrir það tilefni og að því stóðu, Umboðsmaður barna, Barnaheill – Save the Children á Íslandi og UNICEF á Íslandi Merkið verður notað á öllum viðburðum og útgáfu tengdum afmælisárinu.